Innlent

Sveitarfélögin bjóða kennurum 2 % umframhækkun

Launanefnd sveitarfélaganna hefur boðið grunnskólakennurum tveggja prósenta launahækkun umfram það sem gildandi samningar þeirra við sveitarfélögin kveða á um. Kjarasamningur kennara er í gildi til áramóta en á móti tveggja prósenta viðbótarhækkuninni vilja sveitarfélögin að samningurinn framlengist til vors 2008.

Friðarskylda ríkir milli grunnskólakennara og sveitarfélaganna á meðan kjarasamningur er í gildi. En í gildandi kjarasamningi er endurskoðunarákvæði, þar sem segir að aðilar skyldu taka upp viðræður í september á síðasta ári og fara yfir forsendur launaliðar m.a. með tilliti til þróunar í efnahagsmálum.

"Launanefnd sveitarfélaga hefur í rauninni boðið tvö prósent ofan á fyrri hækkanir, eða þær hækkanir sem eru í kjarasamningum," segir Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hinn 1. jánúar 2007 og svo aftur 1. janúar 2008. Samanlagt tvö prósent til viðbótar.

Þetta þýðir að kennarar myndu fá 0,75 prósenta viðbótarhækkun frá síðustu áramótum og hækkuðu laun þeirra þá um samtals þrjú prósent frá 1. janúar síðast liðnum og svo aftur 1,25 prósenta viðbótarhækkun hinn 1. janúar 2008, sem þýddi að laun þeirra hækkuðu þá um 3,5 prósent. Kennarar krefjast hins vegar 7,5 prósenta hækkunar umfram gildandi samnnga. Þetta segja sveitarfélögin að sé tífalt meiri hækkun en orðið hefur á almennum vinnumarkaði og myndi kosta sveitarfélögin 1,5 milljarð króna á ári.

"Það er auðvitað reynt að gæta allrar sanngirni og horfa til þróunar á almennum launamarkaði. Þetta er auðvitað samkomulagsatriði. Þetta er umdeilanlegt. En það er verið að tala um viðmiðanir við aðra samninga. Þannig að það er mat launanefndarinnar að með þessu sé komið til móts við kennara," segir Halldór Halldórsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×