Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi lýsa yfir stuðningi við Jónmund 30. ágúst 2007 17:24 MYND/EOL
Bæjarfulltrúar og aðrir forystumenn Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi lýsa fullum stuðningi sínum við bæjarstjórann, Jónmund Guðmarsson oddvita flokksins í bænum. Þeir segja DV hafa gert aðför að bæjarstjóranum og er hún hörmuð. DV hefur flutt fréttir af því að bæjarstjórnin íhugi að segja Jónmundi upp. Blaðið segist hafa fyrir þessu heimildir innan úr bæjarstjórninni og að málið hafi komið upp eftir að lykilstarfsmenn hjá bænum hafi kvartað undan fjarveru bæjarstjórans. Þá segist blaðið hafa fyrir því heimildir að Jónmundur hafi keypt sér lóð í Mosfellsbæ og að þangað hyggist hann flytja. Í DV er öllum þessum sögum hafnað af Jónmundi sjálfum og nú hafa forystumenn Sjálfstæðisflokksins í bænum lýst stuðningi við hann. „Við undirrituð, bæjarfulltrúar og forystumenn Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi, hörmum þá aðför sem gerð var að bæjarstjóranum í DV," segir í yfirlýsingunni. „Við lýsum yfir stuðningi við Jónmund Guðmarsson oddvita sjálfstæðismanna og bæjarstjóra." Þá er bent á að í síðustu bæjarstjórnarkosningum hafi listi sjálfstæðismanna hlotið 67,3% greiddra atkvæða og að meirihlutinn hafi sýnt að hann njóti mikils trausts bæjarbúa „sem hann mun áfram nýta til góðra verka í þágu Seltirninga allra," segir að lokum. Undir yfirlýsinguna rita stjórnarmenn í fulltrúaráði flokksins, stjórnarmenn í Sjálfstæðisfélagi Seltirninga auk bæjarfulltrúa og fulltrúa í bæjarmálahópi.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira