Innlent

Reðursafnið leitar að safngrip undan manni

Sigurður Hjartarson: Vill bæta mannlegum safngrip í safn sitt.
Sigurður Hjartarson: Vill bæta mannlegum safngrip í safn sitt.

Sigurður Hjartarson forstöðumaður Reðursafnsins á Húsavík er nú að leita að reður undan manni til að bæta í safn sitt. Fyrir eru 195 safngripir úr ýmsum dýrategundum. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðunni ananova.com.

Sigurður segir í samtali við vefsíðuna að menn frá Bretlandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum hafi haft samband við sig og boðist til að ánafna tólum sínum til safnsins. Ekkert af þessum tilboðum hafi hinvegar verið sett fram í alvöru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×