Heimsótti Breiðavík 45 árum eftir dvöl sína 30. ágúst 2007 11:30 Gísli Már er þakklátur fyrir þær mótttökur sem hann fékk á Breiðavík 45 árum eftir að hann dvaldi þar.
Gísli Már Helgason er eitt af hinu svokölluðu Breiðavíkurbörnum. Hann dvaldi þar við illan kost frá 1960 til 1962 og hafði ekki komið þangað í 45 ár þegar hann ákvað að sækja staðinn heim um verslunarmannahelgina. Það gerði hann eftir hvatningu frá sálfræðingi. Gísli Már er illa farinn á sálinni eftir dvölina á Breiðavík en hann segir ferðasögu sína hér á Vísi. Um verslunarmannahelgina fór ég vestur á Breiðavík. Ég var þar 1960 til 1962. Þessi tvö ár leið mér illa. Ég var búinn að heita því að koma aldrei þangað aftur. Kunningi minn var búinn að skora á mig að koma með sér um Hvítasunnuna en ég var ekki tilbúinn að fara vestur. Hann hélt áfram að hvetja mig til að koma vestur og lét undan nú um verslunarmannahelgina. Ég fór með réttu hugarfari. Þegar hann sótti mig og allt dótið var komið inn í bíl var ég kominn að því að hætta við. Hann sagði að það væri oft seint að hætta við núna. Við fórum með bílinn í smurningu og mér leið ekki vel. Svo fórum við og sóttum fjölskylduna hans. Mér leist vel á fjölskylduna og börnin yndisleg. Nú í dag finnst mér ég vera ða kynnast nýrri fjölskyldu. Síðan ókum við vestur. Þegar við komum í hlaðið á Breiðavík var ég eins og frosinn ískarl. Ég var ekki tilbúinn að fara inn. Fjölskyldan fór ein inn og kunningi minn sagði við Birnu [staðarhaldara á Breiðavík] að hann væri kominn með fósturson Breiðavíkur. Birna kom út með útbreiddan faðminn og kom mér inn í hús. Hún bauð mér kaffi. Þá voru fleiri komnir. Sonur hjónanna, sem var kominn, klappaði mér á öxlina. Fljótlega fannst mér að við værum ein fjölskylda. Við ræddum saman. Síðan fékk ég að vita hvar herbergið, sem ég átti að búa í þessar nætur, var. Ég uppgötvaði hvaða herbergi ég bjó í þessi tvö ár sem ég dvaldi þarna. Ég held að ég hafi ekki sofið eins vel í mörg ár. Morguninn eftir var ég eitt bros. Ég held að bænin sem vinir mínir í Hjálpræðishernum báðu hafi hjálpað mikið. Guð hjálpar og verndar. Við skoðuðum margt í ferðinni en ég á enn eftir margt óskoðað. Landslagið er mjög fallegt. Á sunnudagskvöldið vorum við Birna að ræða saman. Hún bað mig að bíða. Síðan færði hún mér að gjöf listaverk með mynd af Kristi og fyrir neðan faðirvorið sem var brennt inn í verkið. Mér þykir mjög vænt um þessa gjöf. Takk fyrir hvað þið tókuð vel á móti mér. Ég vil skora á Íslendinga að koma vestur og skoða landslagið. Svo langar mig að skora á þá sem voru þarna fyrir mörgum árum að koma á staðinn. Það verður örugglega tekið vel á móti ykkur. Ég er ákveðinn að fara vestur eins oft og ég get. Takk fyrir mig, Gísli Már Helgason, Hátúni 10A, Reykjavík
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sjá meira