Alcan fundaði með iðnaðarráðherra og Landsvirkjun 16. apríl 2007 19:04
Wolfgang Stiller, stjórnarformaður Alcan á Íslandi, og Rannveig Rist forstjóri hafa í dag fundað með iðnaðarráðherra og ráðamönnum Landsvirkjunar um stöðu mála eftir álverskosninguna í Hafnarfirði. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra neitar að ræða um það hvort til greina komi að Alcan fái Keilisnes undir nýtt álver.Þau Rannveig Rist forstjóri, og Wolfgang Stiller, stjórnarformaður Alcan á Íslandi, áttu um sjötíu mínútna langan fund með iðnaðarráðherra í morgun, þann fyrsta með honum eftir að Hafnfirðingar höfnuðu breytingu á deiliskipulagi sem leitt hefði til stækkunar álversins í Straumsvík.Rannveig sagði eftir fundinn að rætt hefði verið um venjulega hluti og niðurstöðuna úr kosningunum. Ekkert væri að gerast.Alcan er undir tímapressu en viljayfirlýsing um orkusamning við Landsvirkjun rennur út um mitt sumar. Rannveig sagði aðspurð að ekkert hefði verið rætt um að fá framlengingu á viljayfirlýsingunni.Meðal þeirra kosta sem líklegt þykir að Alcan vilji skoða er uppbygging nýs álvers á Keilisnesi á Vatnsleysuströnd. Ríkið á lóðina þar sem skipulögð var undir álver fyrir sautján árum. Rannveig sagði ekkert plan B til og sagði að hugmyndin um Keilisnes hefði ekkert verið skoðuð og neitaði því að ráðherra hefði verið spurður um hvort til greina kæmi að Alcan fengi þá lóð. Rannveig og Stiller funduðu svo eftir hádegi með ráðamönnum Landsvirkjunar.Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra vildi ekki greina frá einstaka efnisatriðum fundarins í morgun og heldur ekki hvort minnst hefði verið á Keilisnes. Spurður hvort hann teldi þá lausn koma til greina fyrir Alcan sagði hann að ekki kæmi til greina að hann úttalaði sig um það. Ekkert lægi fyrir um það. Slíkt yrði að ræða með eðlilegum hætti innan stjórnsýslunnar.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Sjá meira