Liz Hurley er nískupúki 18. október 2007 14:00 Liz ásamt syni sínum Damian og eiginmanninum Arun. MYND/AFP
Elisabeth Hurley og eiginmaður hennar eru sökuð um nirfilshátt vegna þess að þau greiddu ekki krónu til kirkjunnar þar sem þau voru gefin saman. Vanalega er kostnaður við kór, organista og prest um 130 þúsund krónur. Hurley giftist Arun Nayar í smákirkju við Winchcombe í Gloucestershire í mars síðastliðnum. Veislan var haldin í 15. aldar kastala vinar Hurley skammt frá og hlaut mikla athygli fjölmiðla. Fjöldi heimsfrægra gesta mætti til smábæjarins til að gleðjast með hjónakornunum og fjölmiðlar fjölluðu töluvert um brúðkaupið. Hjónin voru gefin saman í St Mary´s kirkjunni. The Independent greinir frá því að parið hafi ekki fyrirfram verið rukkað um kostnaðinn. Búist var við því að þau myndu láta hærri upphæð renna til kirkjunnar eftir brúðkaupið. Í gær létu safnaðarmeðlimir í ljós mikil vonbrigði með að engin greiðsla hefði borist. Kostnaður vegna kórsins, organista og prestsins er ekki rukkaður fyrirfram, en vanalega láta brúðhjón fjárhæðir nálægt 100 þúsund krónum renna til kirkjunnar. Fjármagns er þörf í sókninni til að byggja aðra kirkju. Í stað peningaupphæðar tilkynnti talsmaður parsins að þau íhuguðu að gefa kirkjunni 12 bænaskemla fyrir gesti til að krjúpa á. Bænaskemlar eru hins vegar afar neðarlega á forgagnslista kirkjunnar segir Sue Williams sem sér um fjármál kirkjunnar. Hún segir að hjónin hafi ekki spurt hvort þörf væri á bænaskemlum. "Við þurftum peninga til að borga fyrir hita og rafmagn og nýjar sálmabækur." Sue segir að mikið hafi verið rætt um málið í sókninni og parið gagnrýnt harkalega fyrir að borga ekki fyrir athöfnina. Hurley hafi ábyggilega efni á að borga 130 þúsund krónur.
Mest lesið „Markmiðið var náttúrlega að drepa Moggann“ Lífið Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Lífið samstarf Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum Lífið samstarf Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Lífið Fleiri fréttir „Markmiðið var náttúrlega að drepa Moggann“ Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Sjá meira