Innlent

Stefndu lífi og limum samborgara sinna í hættu

MYND/365

Tveir ökumenn gista nú fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að hafa stefnt lífi og limum samborgara sinna í hættu með háska akstri undir áhrifum áfegnis og fíkniefna.

Sá fyrri ók á bíl í Kópavogi í gærkvöldi, þar sem barn um borð í honum meiddist lítillega, en ölvaði og dópaði ökumaðurinn stakk af. Barnið var flutt á slysadeild. Eftir ofsaakstur náði lögregla að króa hann af. Fregnir höfðu áður borist af glæfra akstri hans víða um höfuðborgarsvæðið.

Þá ók annar, fullur og dópaður aftan á bíl á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar eftir miðnætti og hafnaði bíll hans loks á götuvita. Farþegi hans og ökumaður hins bílsins þurftu aðhlynningu á Slysadeild, en ökumaðurinn tók til fótanna og hvarf út í náttmyrkrið. Lögreglumenn fundu hann skömmu síðar og vistuðu í fangageymslu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×