Innlent

Lugovoj til liðs við Zhírínovsky?

Andrei Lugovoj er aðdáandi Zhírínovskys.
Andrei Lugovoj er aðdáandi Zhírínovskys. MYND/AP

Andrei Lugovoi, njósnarinn fyrrverandi sem bresk stjórnvöld hafa sakað um morðið á öðrum fyrrverandi njósnara, Alexander Litvinenko, hyggst bjóða sig fram til þingsetu fyrir hægriöfgaflokkinn LDPR, flokk Vladímírs Zhírínovsky, í kosningum 2. desember.

Frá þessu var greint á fréttavef dagblasins Gazeta í Rússlandi og vitnað til Zhírínovskys. Lugovoj neitaði að staðfesta þetta fyrir flokksþing LDPR sem fram fer á mánudag. Hann sagðist þó í samtali við rússneska útvarpsstöð virða flokkinn og leiðtoga hans Zhírínovsky.

Bresk stjórnvöld hafa farið fram á það að Lugovoj verði framseldur til Bretlands vegna morðsins á Alexander Litvinenko en hann lést af völdum eitrunar frá geislavirku efni sem honum var byrlað.

Flokkur Zhírínovskys hefur verið nokkur umdeildur enda skipaður rússneskum öfgaþjóðernissinnum. Þá hafa skoðanir leiðtogans Zhírínovsky ekki síður þótt umdeildar en hann hefur meðal annars lagt til að Ísland yrði gert að fanganýlendu fyrir Rússa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×