Innlent

Portúgalskur nauðgari enn erlendis

Luis Da Silva Conçalves sem var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir hrottalega nauðgun í síðasta mánuði er enn staddur erlendis. Maðurinn fór úr landi áður en Hæstiréttur kvað upp dóminn. Fangelsismálastofnun hefur boðað hann til afplánunar í byrjun næstu viku, eftir því sem fram kemur á vef Morgunblaðsins.

Haft er eftir Guðmundi Ómari Hafsteinssyni, sem var skipaður verjandi Da Silva Conçalves, að hann hafi haft samband við Fangelsismálastofnun um það hvenær hann ætti að hefja afplánun. Da Silva Conçalves hafi í framhaldinu tjáð sér og Fangelsismálastofnun, að hann ætlaði að koma til landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×