Innlent

Ringo kominn til landsins

Ringo Starr, fyrrverandi trommari Bítlanna, kom til landsins nú á fjórða tímanum og lá vel á honum að sögn Páls Ketilssonar, ritstjóra Víkurfrétta, sem náði tali af kappanum í Lefisstöð.

Eins og fram hefur komið er Ringo hingað kominn til þess að vera viðstaddur tendrun friðarsúlunnar í Viðey sem Yoko Ono á veg og vanda að ásamt borgaryfirvöldum. Súlan er reist til minningar um John Lennon en hann hefði orðið 67 ára í dag. Reiknað er með að hún logi allt fram til 8. desember en það er dánardægur Lennons.

Ringo kom til landsins í Gulfstream-einkaþotu og með honum í för var Olivia Harrisson, ekkja George Harrisons, félaga Ringos og Lennons úr Bítlunum. Engin tíðindi höfðu hins vegar borist af Paul McCartney, fjórða Bítilnum.

Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, náði tali af Ringo þegar hann kom til landsins. „Hann lék á als oddi og var í svaka stuði. Hann sagðist ánægður að vera kominn aftur til Íslands og ánægður með friðarsúlu Yoko Ono," sagði Páll.

Viðtal Páls við Ringo Starr verður í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×