Lögregla kærð fyrir að beita harðræði við handtöku 12. september 2007 14:00 Sérsveitarmenn eru sagðir hafa beitt unga pilta harðræði við tilefnislausa handtöku. MYND/Júlíus Sigurjónsson
Lögð hefur verið fram kæra á hendur lögreglunni fyrir að beita þrjá unga menn óeðlilega miklu harðræði. Drengirnir voru handteknir að tilefnislausu af vopnuðum sérsveitarmönnum sem beindu að þeim skotvopnum. Kristín Edwald, lögmaður drengjanna, staðfestir að kæra hafi verið lögð fram til ríkissaksóknara auk þess sem bótakröfu hafi verið beint til ríkislögmanns. Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Atvikið átti sér stað þann 23. júlí síðastliðinn í Kópavogi. Samkvæmt heimildum Vísis voru drengirnir á ferð í bíl við verksmiðju Ora við Vesturvör þegar þeir voru stöðvaðir af lögreglu og vopnuðum sérsveitarmönnum. Þeim var umsvifalaust skellt í jörðina og þeir handjárnaðir á meðan byssum var beint að þeim. Að því loknu voru þeir færðir á lögreglustöð þar sem gerð var á þeim líkamsleit og þeir vistaðir um tíma í fangageymslu áður en í ljós kom að þeir voru alsaklausir. Eftir að í ljós kom að lögregla hafði gert mistök báðu hlutaðeigandi lögreglumenn þá afsökunar. Drengirnir halda því fram að með því að beina að þeim byssum hafi lögregla beitt þá óeðlilega miklu harðræði. Heimildir Vísis herma að lögregla hafi verið kvödd á svæðið í kjölfar þess að hvellir hafi heyrst í hverfinu sem einhverjir hafi álitið vera skothvelli. Því hafi sérsveitin verið kölluð til. Síðar mun hafa komið í ljós að unglingsdrengir, algjörlega ótengdir þeim handteknu, voru að leika sér með flugelda.
Mest lesið Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Innlent „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Innlent Svandís stígur til hliðar Innlent Fleiri fréttir Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Sjá meira