Fékk útsýnislóð út á spaðaásinn 12. september 2007 11:16
Jónas Gestur Jónasson varð hlutskarpastur í útdrætti um eftirsótta lóð á Húsavík á dögunum. Alls sóttu 33 um lóðina, sem stendur á fallegum útsýnisstað í bænum, en dregið var úr umsækjendum með aðstoð spilastokks. ,,Ég var nú reyndar ekki á staðnum, en spaðaásinn var dreginn fyrir mig." sagði Jónas í samtali við Vísi. Hann bætti því við að þegar hefði verið búið að draga laufa ásinn tvisvar, en útdrátturinn fór fram með þeim hætti að þegar spil hafði verið dregið fyrir umsækjanda var það sett aftur í stokkinn. Jónas segist ekki vera mikill spilamaður, en hann er löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte á Ólafsvík. Aðspurður hvort hann sé að flytja til Húsavíkur, segist hann ekki viss um það ennþá. Hann ætli að byggja á lóðinni og hugsa sinn gang upp úr því. Mikil gróska er í fasteignamarkaðnum á Húsavík, og hefur verð á fasteignum hækkað mikið þar undanfarið. Það tengist umræðum um mögulega álversbyggingu á Bakka, fyrir utan bæinn.
Mest lesið Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Fleiri fréttir Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Hlaupið aftur í rénun eftir vöxt í nótt Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Hver verður Íslandsmeistari í hrútaþukli? Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Akstursíþróttasamfélagið harmi slegið, unglingadrykkja á Menningarnótt og hrútaþukl Evrópusambandið, menntamál, stýrivextir og Gasa í Sprengisandi „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Sjá meira