Spilavíti í Flensborg 27. febrúar 2007 13:20 Spilakassar og V.I.P herbergi má finna í Flensborgarskólanum þessa dagana.
Þessa vikuna eru vakningardagar í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Vakningardagar eru haldnir árlega og í hvert sinn er valið þema og skólinn skreyttur að innan í samræmi við það. Í ár er þemað spilavíti. Nemendur hafa um helgina unnið hörðum höndum að því að skreyta skólann og í gærmorgun var verkið svo afhjúpað. Skreytingarnar byrja fyrir utan skólann þar sem búið er að reisa nýtt anddyri sem orðið Casino hefur verið skorið í. Þegar inn er komið taka á móti gestum tvö stór ljón og innar er gengið inn í „pókerherbergi". Herbergið er klætt vínrauðu flaueli og inni í því eru spilaborð og í horninu er sérútbúin kapella fyrir alvöru Las Vegas brúðkaup þar sem enginn annar en Elvis Presley er presturinn. Á móti kapellunni er bar og við af honum tekur langur gangur með fjórum spilakössum sem nemandi í Flensborg og nemandi í Iðnskólanum í Hafnarfirði smíðuðu. Þessi gangur endar í V.I.P. herbergi. Á efri hæðinni er hótel þar sem kennarastofan er afgreiðslan og setustofa nemenda er móttakan. Á öryggishólfum kennara eru nöfn eins og Björk Guðmundsdóttir, Steven Spielberg og Michael Jackson. Í gluggum matsalarins er mynd sem sýnir útsýni yfir Las Vegas, þannig að öllum ætti að líða eins og þeir séu komnir inn í alvöru spilavíti í Las Vegas. Á miðvikudag og fimmtudag verður hefðbundið skólastarf brotið upp og í skólastofunum verða fyrirlestrar, ræðukeppnir, stjórnmálafundir og skemmtiatriði. Meðal þeirra sem koma í heimsókn eru Lalli töframaður, bingó Villi, Magnús Skarphéðinsson, pókerkennarar, Sveinn Waage uppistandari, Gunnar í Krossinum og Logi Ólafsson knattspyrnuþjálfari. Á fimmtudagskvöld verður svo árshátíð nemendafélagsins. Hún byrjar með viðhafnarkvöldverði á sal skólans. Eftir það er haldið á Broadway þar sem Milljónamæringarnir og Rottweiler halda uppi stuðinu. Olga Eir Þórarinsdóttir formaður árshátíðarnefndar segir: „Vakningardagar eru árlegur viðburður í Flensborg. Þá er partur af skólanum skreyttur eftir einhverju þema. Þetta er heilmikil vinna þar sem við þurfum að umbreyta skólanum algerlega yfir eina helgi. Við notum auðvitað vikuna til þess að undirbúa okkur en mesta vinnan gerist um helgina. Í fyrra var hippaþema en nú er það spilavíti. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta er gert eftir að skólinn var stækkaður þannig að það var mikil ögrun fyrir okkur að gera þetta vel."
Mest lesið Líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Fleiri fréttir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Sjá meira