Lífið

Heimsótti þriggja ára krabbameinssjúkan aðdáanda sinn

Sean Callahan þjáist af krabbameini en heimsókn Sportacusar gaf honum mikið í erfiðri baráttu sinni við sjúkdóminn.
Sean Callahan þjáist af krabbameini en heimsókn Sportacusar gaf honum mikið í erfiðri baráttu sinni við sjúkdóminn.

„Við höfum fengið ansi mikið af svona tölvupóstum þar sem börn hafa hellt sér af fullum krafti útí Latabæjar-lífstílinn," segir Magnús Scheving. Í helgarútgáfu breska blaðsins Sunday People var sagt frá hinum tveggja ára gamla Cody McCaffrey sem slapp frá leiksskólanum sínum og lagði af stað í mikla hættuför heim til sín. Móðir drengsins lýsti því síðan yfir að hún væri viss um að Cody hefði þarna verið að herma eftir hetjunni sinni, sjálfum Sportacus eða Íþróttaálfinum úr Latabæ. „Hann elskar ekki bara Latabæ, Latibær er lífið sjálft," sagði móðirin.

Þótt Magnús væri ekkert sérstaklega að mæla því bót að börn reyndu að sleppa úr höndum leiksskólakennara þá sýndu svona dæmisögur að verkefnið væri að ganga fullkomlega upp-að fá börn til hreyfa sig. „Ég hef reyndar hitt foreldra sem hafa sagt mér frá marblettum krakkanna sinna eftir að þau hafa hoppað niður af borðum og ég held að það sé ekki hægt að koma í veg fyrir slíkt þegar litla athafnafólkið fer af stað."



Takk Sportacus Foreldrar Sean sendu Magnúsi langt bréf sem hann geymir mjög vel en þar þakka þau honum innilega fyrir heimsóknina

Og Latibær er ekki bara einhver sjónvarpsþáttur á skjánum með leiknum persónum heldur hefur Magnús verið á fleygiferð um heiminn í þeim erindagjörðum að hvetja smáfólkið enn frekar til dáða. Og stundum geta slíkar heimsóknir verið bæði hjartnæmar og erfiðar. Magnús fór meðal annars til Bandaríkjanna nýverið og heimsótti þar ungan krabbameinssjúkan aðdáanda sinn, hinn þriggja ára Sean Callahan, sem lifir og hrærist í sjónvarpsþáttunum.

 

Íþróttaálfurinn. Þrátt fyrir að íþróttahetjan sé flestum bara kunn á sjónvarpsskjánum þá er hún sprellilifandi í raunveruleikanum líka.

„Það var hringt í mig og ég var beðinn um að koma. Og þessi ungi strákur vildi bara fá eitt og það var „Sports Candy" eða epli," segir Magnús sem segist þarna hafa gert sér grein fyrir því hversu mikið Latabæjar-þættirnir geti gefið krökkum. „Við áttum saman mjög ánægjulega stund," útskýrir Magnús sem skömmu síðar fékk langt og innilegt þakkarbréf frá foreldrum stráksins sem hann geymir vel, sem og mynd af Sean.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.