Innlent

Fundar með forseta Kína um samstarf

Ólafur Ragnar Grímsson hefur haft stutta viðdvöl á Íslandi eftir för til Bandaríkjanna því hann heldur nú til Kína.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur haft stutta viðdvöl á Íslandi eftir för til Bandaríkjanna því hann heldur nú til Kína. MYND/Hrönn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundar á morgun með Hu Jintao, forseta Kína Hu Jintao, í Shanghai og verður jafnframt viðstaddur opnunarhátíð Heimsleika Special Olympics.

Ólafur Ragnar fer til Kína í boði starfsbróður síns en á fundi þeirra verður meðal annars rættum hvernig Íslendingar geta lagt Kínverjum lið í baráttunni gegn vaxandi mengun í stórborgum Kína. Auk þátttökunnar í Special Olympics mun forseti Íslands heimsækja Xianyang þar sem Íslendingar eru í samvinnu við Kínverja um byggingu hitaveitu. Þá heimsækir hann hafnarborgina Quingdao þar sem Eimskip hefur haslað sér völl.

Í tengslum við Special Olympics, sem er íþróttahátíð seinfærra og þroskaheftra, verður ráðstefna um framtíðarþróun íþróttastarfs meðal þroskahefts fólks. Forseti Íslands hefur formanni Íþróttasambands fatlaðra í Kína annast undirbúning ráðstefnunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×