31 milljarðs tekjuafgangur hjá ríkissjóði á næsta ári 1. október 2007 16:14
Gert er ráð fyrir að tekjuafgangur ríkissjóðs verði 66 milljarðar á þessu ári og nærri 31 milljarður á því næsta samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2008 sem kynnt var í dag. Í fyrri hluta frumvarpsins er farið yfir stefnu og horfur í efnahagsmálum og bent er á að afkoma ríkissjóðs verði margfalt betri á þessu ári en gert hafi verið ráð fyrir í fjárlögum 2007, eða 66 milljarðar króna afgangur í stað níu milljarða afgangs. Gert var ráð fyrir því í fjárlagfrumvarpi fyrir yfirstandandi ár að heildartekjur ríkissjóðs yrðu um 376 milljarðar en samkvæmt endurskoðaðri áætlun fjármálaráðuneytisins verða þær nærri 450 milljarðar. S egir í frumvarpinu að skýringa á þessu megi meðal annars leita í því að fjármagstekjur hafi aukist vegna áframahaldandi hækkunar á eignaverði. Þá hafi tekjuskattur, tryggingagjöld og virðisaukaskattur aukist meira en reiknað var með. Það má meðal annars skýra með því að vöxtur einkaneyslu, launabreytingar og mannfjölgun hafi orðið meiri en reiknað var með. Útgjöld aukast um átta prósent á milli ára. Þegar horft er til næsta árs er gert ráð fyrir að tekjuafkoma ríkissjóðs verði jákvæð um ríflega 30 milljarða króna sem er mun betra en langtímaspá í síðasta fjárlagafrumvarpi gerði ráð fyrir. Þá var gert ráð fyrir að rekstur ríkissjóðs yrði neikvæður um fimm milljarða króna. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs á næsta árið verði um 461 milljarður króna sem er 77 milljörðum króna meira en áætlun sem lögð var fram haustið 2006 gerir ráð fyrir. Útgjöld ríkissjóðs á næsta ári verða hins vegar um 430 milljarðar króna og aukast um átta prósent að raungildi á milli ára. Aukning á útgjöldum stafar af mestu af auknum framlögum til mennta- og velferðarmála, en gert er ráð fyrir átaki í málefnum geðfatlaðra og kostnaði við stefnumörkun í málefnum barna og ungmenna. Enn fremur aukast útgjöld til menntamála, einkum vegna framlaga til háskóla og rannsóknarsjóða. Þá tvöfaldast svokallaður stofnkostnaður ríkissjóðs á milli ára og er þar einkum um að ræða samgönguframkvæmdir eftir því sem segir í fjárlagafrumvarpinu. Ráðstöfun af söluandvirði Landsímans hefst fyrir alvöru og aukast framlög til vegamála um 14 milljarða, hafnamála um 1,4 milljarða og flugmála um 1,5 milljarða. Þá nemur kostnaður við smíði varðskips og kaup á flugvélum fyrir Landhelgisgæsluna um tveimur milljörðum króna á næsta ári. Hins vegar er gripið til þess ráðs að fresta framkvæmdum við Sundabraut um 1,5 milljarða á næsta ári til þess að lækka útgjöldin ásamt því að lækka rekstrargjöld ýmissa stofnana og verkefna.Bent er á í frumvarpinu að sterk staða ríkissjóðs hafi leitt til þess að frá og með árinu 2006 séu vaxtatekjur ríkissjóðs töluvert umfram vaxtagjöld, eða sem nemur 3,5 milljörðum á næsta ári. Það sé vegna þess að tekjuafgangi síðustu ára hafi verið varið til að styrkja gjaldseyrisstöðu, lækkar skuldir ríkissjóðs og greiða fyrir fram inn á lífeyrisskuldbindingar ríkisins.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira