Innlent

Hafði undir höndum stolna muni og mikið magn fíkniefna

Tuttugu og þriggja ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir að taka við stolnum munum þrátt fyrir að ákærða hafi verið ljóst að um þýfi var að ræða. Þannig hafi hann haldið þeim ólöglega fram til 9. mars 2007. Meðal þeirra gripa sem maðurinn tók við var Apple MacBook Pro fartölva sem hafði verið stolið frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands í Odda í janúar síðastliðinn og i-pod sem hafði verið stolið af heimili úr Reykjavík.

Sama dag fann lögregla við húsleit og við öryggisleit á ákærða rúm 19 grömm af hassi, 7 grömm af kókaíni, tæp tvö grömm af amfetamíni, tæp þrettán grömm af maríjúana, rúm fjögur grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni og 41 töflu með vímuefninu MDMA.

Sami maður er ákærður fyrir að hafa haft í vörslum sínum 0,02 grömm af amfetamíni, rúm 230 grömm af hassi, tæp 16 grömm af kókaíni, 52 grömm af maríjúana, 0, 2 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni og 21 töflu með vímuefninu MDMA. Félagi mannsins er ákærður fyrir að hafa handleikið ofangreint hass og klippt það niður í minni einingar.

Málið yfir mönnunum tveimur var þingfest í héraðsómi í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×