Innlent

Dregur úr nýskráningum ökutækja

MYND/GVA

Nýskráningar á bifreiðum eru töluvert færri í ár miðað við sama tíma í fyrra og munar þar 3,5 prósentum. Það sem af er ársins hafa 23.571 ökutæki verið skráð miðað við 24.427 ökutæki á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í fréttabréfi Umferðarstofu. Tímabilið sem um ræðir nær frá 1. janúar og fram til 28. september.

Þar kemur einnig fram að um leið og dregið hefur úr nýskráningum hefur orðið þónokkur fjölgun þegar kemur að eigendaskiptum, eða um 5,8 prósent á milli ára. 79.136 ökutæki hafa skipt um eigendur það sem af er árinu miðað við 74.785 á sama tíma á síðasta ári.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×