Óumflýjanlegt að taka kvótakerfið til endurskoðunar 1. október 2007 12:11
Vinstri - græn segja að kvótakerfið hafi brugðist og óumflýjanlegt sé að taka það til endurskoðunar. Þá segir flokkurinn mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar fálmkenndar og koma þeim sem verði fyrir áfalli vegna niðurskurðar á þorskkvóta að litlu eða engu gagni. Þingflokkur Vinstri - grænna hyggst beita sér fyrir því að Alþingi taki á þessum málum á fyrstu starfsdögunum eftir því sem segir á heimasíðu Vg. Þingflokkurinn hyggst einnig leggja áherslu á við upphaf þings að gerð verði ítarleg rannsókn á því hvaða áhrif markaðsvæðing almannaþjónustu hafi og þá vill flokkurinn að hin umdeildu vatnalög, sem taka eiga gildi 1. nóvember, verði felld úr gildi. Vinstri - græn vilja enn fremur að hjúskaparlögum verði breytt þannig að þau gildi jafnt um öll pör, samkynhneigð sem gagnkynhneigð. Þá vill flokkurinn bæta stöðu almenningssamgangna með því að fella niður virðisaukaskatt og endurgreiðslu olíugjalds fyrir slíkar samgöngur. Jafnframt þurfi að stórefla íslenskukennslu fyrir innflytjendur með markvissri aðgerðaáætlun í stað tímabundinna reddinga. Enn fremur vilja Vinstri - græn að orkuverð og samningskilmálar vegna orkusölu í landinu verði opinberir og að fallið verði endanlega frá áformum um Norðlingaölduveitu og frekari virkjanir í Þjórsá. Þá hyggjast Vinstri - græn leggja fram þingsályktunartillögur um að um friðlýsingu Austari- og Vestari-Jökulsár í Skagafirði og lagafrumvarp sem kveður á um að tannlækningar verði gjaldfrjálsar.
Mest lesið Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Innlent Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Erlent Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Erlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Fleiri fréttir Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Lögreglan lokaði fyrir umferð í Hlíðarfjall Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Kjósa um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Skellur fyrir Trump „Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Leita vitna að atviki í Bolungarvíkurgöngum Rannsaka tilefnislausa líkamsárás í miðbænum Loka sundlaugum vegna loðnuvertíðar Ballið byrjað í Bláfjöllum Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Grafalvarlegt að berklasmit hafi greinst Kvörtunum rigndi yfir umboðsmann í fyrra Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Regína lætur staðar numið í Mosó Kerfið mikið breytt frá því að Barnaverndarstofa var lögð niður Sjá meira