Innlent

Alvarlega slasaður eftir bílveltu

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti í kvöld mann til Reykjavíkur eftir bílslys í Reykhólasveit. Að sögn lögreglu er maðurinn alvarlega slasaður. Maðurinn, sem var einn í bíl sínum, ók út af veginum við Klukkufell með þeim afleiðingum að bíllinn valt.

Tildrög slyssins eru ókunn en lögregla vinnur að rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×