Saklaus maður sviptur frelsi Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. september 2007 16:52
Liðlega tvítugur karlmaður hefur stefnt dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins vegna ólögmætrar frelsissviptingar. Maðurinn var stöðvaður af lögreglu í Árnessýslu að morgni þriðjudagsins 22. mars 2005 vegna of hraðs aksturs. Hann var beðinn að koma í lögreglubifreið þar sem hann játaði brot sín. Með manninum í bifreiðinni var pólskur maður sem reyndist við athugun hvorki hafa dvalar- né atvinnuleyfi á Íslandi. Grunur vaknaði hjá lögreglu um að sá pólski væri við vinnu hér á landi án leyfa, sem lögregla taldi hann þurfa að hafa. Sá pólski var handtekinn og ekið burtu í bíl mannsins. Maðurinn var hins vegar færður á lögreglustöð til varðstjóra. Þar var hann spurður ítarlegra spurninga án þess að honum væri kynntur réttur sinn. Maðurinn fullyrðir að varðstjóri hafi verið hinn ruddalegasti. Öskrað og vænt sig um lygar. Eftir um sex klukkustunda veru á lögreglustöð var manninum gert ljóst að hann hefði stöðu sakbornings. Grunaður um akstur án ökuréttinda, of hraðan akstur og aðild að ólöglegri veru og vinnu útlendinga. Hann játaði aftur umferðarlagabrotin. Maðurinn greiddi sekt vegna umferðarlagabrotanna. Hann fékk hins vegar ekkert að vita um afdrif máls, sem varðaði meint brot hans á lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Lögmaður hans sendi bréf til sýslumannsins á Selfossi í apríl og óskaði upplýsinga um afdrif málsins. Bréfinu var ekki svarað. Lögmaðurinn sendi þá annað bréf þann 30. ágúst 2006 með sömu fyrirspurn. Daginn eftir barst lögmanninum bréf þar sem tilkynnt var að mál mannsins, að því er varðaði meint brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga, hefði verið fellt niður. Maðurinn stefnir ríkinu því hann telur að frelsissvipting hans hinn 22. mars 2005 hafi verið ólögmæt. Engin heimild hafi verið fyrir henni í lögum og hvorki tilefni til né nauðsyn á að svipta hann frelsi. Auk þess hafi hún verið framkvæmd á óþarflega særandi og móðgandi hátt. Þá hafi frelsissviping stefnanda staðið lengur en efni stóðu til og þörf var á.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira