Slagsmál unglinga mynduð og sett á Netið Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. september 2007 16:45
Slagsmál á meðal reykvískra unglinga voru tekin upp á myndband og sett á Netið. Samkvæmt heimildum Vísis eru unglingarnir á aldrinum 14-15 ára og nemendur í Réttarholtsskóla. Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri hjá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, hafði ekki séð myndbandið þegar blaðamaður Vísis benti henni á það. Aðalbjörg segir að sér finnist ofbeldið á myndbandinu vera ofboðslega ljótt. „Þetta er eitthvað sem við viljum ekki sjá og við viljum ekki að börnin okkar standi fyrir," sagði Aðalbjörg við Vísi. Hún segir að málið verði skoðað. Ef í ljós komi að ofbeldið sé ekki sviðsett verði haft samband við viðeigandi aðila. Aðalbjörg telur að mismunandi aðilar þurfi að taka á málum sem þessum. Það fari eftir aðstæðum hverju sinni. „Skólastjórnendur Réttarholtsskóla munu væntanlega vilja fá vitneskju um málið ef drengirnir á myndbandinu eru nemendur í skólanum, og barnaverndaryfirvöld," segir Aðalbjörg. Þá geti verið að gera þurfi lögreglunni viðvart um málið. „Ég get líka ímyndað mér að málið snerti friðhelgi einkalífsins því varla hafa allir á myndbandinu viljað að það yrði tekin mynd af þeim," segir Aðalbjörg. Aðalbjörg kannast ekki við að mál eins og þetta hafi komið upp í Laugardals- og Háaleitishverfis fyrr, en skemmst sé að minnast þess þegar slagsmál við Háskólabíó voru tekin upp. Ekki náðist í skólastjóra Réttarholtsskóla vegna málsins. Formaður foreldrafélags skólans vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið.
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fleiri fréttir Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Sjá meira