Rangar fullyrðingar um lyfjaverð á Íslandi 17. september 2007 15:00 Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtaka framleiðenda frumlyfja. MYND/SK
Allar fullyrðingar um að lyfjaverð á Íslandi sé hærra en í nágrannalöndum okkar eru úr lausu lofti gripnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Samtökum framleiðenda frumlyfja. Þau benda á að frumlyf á íslenskum markaði séu ódýrari en í Danmörku. Samtökin vilja að stjórnvöld felli niður eða lækki virðisaukaskatt á lyfjum. „Það er oft fullyrt í fjölmiðlum að lyfjaverð á Íslandi sé 60 prósent hærra en á meginlandi Evrópu," sagði Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtaka framleiðenda frumlyfja, í samtali við Vísi. „Þær fullyrðingar eru hins vegar rangar og úr lausu lofti gripnar." Í yfirlýsingu sem Frumtök - Samtök framleiðenda frumlyfja sendu frá sér kemur fram að heildsöluverð frumlyfja hér á landi sé að meðaltali hið sama og í þeim samanburðarlöndum sem hið opinbera hefur til viðmiðunar. Bent er á að hlutfall lyfja af opinberum heilbrigðisútgjöldum hafi lækkað jafnt og þétt undanfarin ár, úr 9,13 prósent árið 2000 í 7,65 prósent árið 2005. Þá segir ennfremur í yfirlýsingunni að vandamálin í heilbrigðiskerfinu séu stór og erfið viðureignar en lúti síst að verði lyfja. Menn hafi hins vegar kosið að stinga höfðinu í sandinn gagnvart öðrum vandamálum og einblínt eingöngu á lyfjaverð. Samtökin benda á að sennilega mætti draga úr lyfjanotkun í landinu með því að stytta biðlista eftir aðgerðum á spítölum. Hér hafi hins vegar lyf orðið fyrir valinu sem ódýrasti valkosturinn. Þá gagnrýna samtökin skattastefnu stjórnvalda gagnvart lyfjum. Benda þau á að hér á landi sé lagður 24,5 prósent virðisaukaskattur á lyf en á sama tíma sé aðeins 7 prósent skattur á gosdrykki. Í Svíþjóð er enginn virðisaukaskattur lagður á lyf. „Stjórnarflokkarnir tveir lofuðu fyrir kosningar að lækka eða fella alveg niður virðisaukaskatt á lyfjum. Nú bíðum við bara eftir því að þeir efni þetta loforð," sagði Jakob Falur.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira