Steingrímur segir að fresta verði gildistöku vatnalaga 29. ágúst 2007 19:13 MYNd/GVA
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefur sett í gang endurskoðun á vatnalögunum umdeildu sem eiga að taka gildi 1. nóvember næstkomandi. Í fréttum Ríkisútvarpsins var sagt að ráðherra láti nú kanna sérstaklega að vatn verði ekki séreign eins og lögin gera ráð fyrir. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, segir að höfuðatriði í málinu sé að gildistöku lagana verði frestað. Engin leið sé að laga þau til áður en nóvember gengur í garð. „Ég held að það sé fráleitt að endurskoða lögin fyrir 1. nóvember," segir Steingrímur. Stjórnarandstaðan gagnrýndi lögin harðlega á síðasta þingi og þar fór Össur Skarphéðinsson, núverandi iðnaðarráðherra framarlega í flokki. „Þetta snýst um grunnuppbyggingu lagana," segir Steingrímur. Hann segir einu leiðina í málinu vera þá að fresta gildistöku nýju lagana eða fella þau úr gildi og hefja þegar nýja endurskoðun. Hann segir málið afar mikilvægt ekki síst í ljósi þess að nú séu menn farnir að tala um einkavæðingu í orkugeiranum og þá sé mikilvægt að hafa þessi mál á hreinu. „En ég gef ekkert fyrir þessar fréttir um endurskoðun á lögunum í ráðuneytinu nema að því fylgi að gildistökunni verði frestað. Ég hef enga trú á því að nokkura vikna vinna beri árangur," segir Steingrímur í samtali við Vísi.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sjá meira