Ingibjörg Sólrún boðar mjúka utanríkisstefnu 29. ágúst 2007 19:23
Framlag Íslendinga á alþjóðavettvangi verður í framtíðinni í formi sérfræðinga en ekki vopnaðra sveita. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra boðar "mjúka" utanríkisstefnu og varnarstefnu sem byggi á samráði allra stjórnmálaflokka. Þetta kom fram á ráðstefnu sem haldin var í dag. Þó að yfirskrift ráðstefnunnar sé Kapphlaupið á Norðurpólinn, þá notaði Ingibjörg Sólrún tækifærið til að kynna hugmyndir sínar um breytta, í raun gjörbreytta, stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslendinga. Hörð stefna víkur fyrir mjúkri og vopnaðar sveitir - eins Íslendingar hafa haft í Afganistan - virðast heyra sögunni til. Fulltrúar danska flotans og sænska hersins voru meðal þeirra sem komu til að ræða kapphlaupið á Norðurpólinn - en fengu í staðinn fyrstu opinberu yfirlýsingu nýs utanríkisráðherra um breyttar áherslur í varnar- og alþjóðamálum - áherslur sem byggi á samráði innanlands. Ingibjörg Sólrún sagðist í ræðunni vilja stofna samráðsvettvang stjórnmálaflokkanna um öryggis- og varnarmál, öfluga rannsóknarstofnun um þau mál og skilja vel á milli innra og ytra öryggis. Tilhneigingin undanfarið hefur verið að blanda saman lögreglu og her, eins og til dæmis Bandaríkjamenn hafa mjög gert í hinu svokallaða stríði gegn hryðjuverkum. Utanríkisráðherra vill fara í þveröfuga átt.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún á opnum fundi nefndar um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira