Innlent

Rúna Hauksdóttir nýr formaður Lyfjagreiðslunefndar

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur skipað Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, formann Lyfjagreiðslunefndar frá og með næstu mánaðamótum. Hún tekur við af Páli Péturssyni, fyrrverandi ráðherra, sem lætur af störfum sökum aldurs sem formaður og starfsmaður nefndarinnar.

Eftir því sem segir á vef heilbrigðisráðuneytisins er Rúna með meistarapróf í lyfjafræði og sömuleiðis í heilsuhagfræði. Hún er forstöðumaður Rannsóknastofnunar um lyfjamál og stundakennari við lyfjafræðideild HÍ.

Lyfjagreiðslunefnd ákvarðar meðal annars hámarksverð á lyfseðilsskyldum lyfjum og öllum dýralyfjum í heildsölu og smásölu sem og greiðsluþátttöku almannatrygginga í lyfjaverði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×