Ódýrustu lyf á Íslandi eru seld á Akranesi 29. ágúst 2007 17:59 Ólafur Adolfsson, lyfsali á Akranesi. MYND/365
Ólafur Adolfsson, lyfsali í Apóteki Vesturlands á Akranesi er óhress með apótekið Lyf og heilsu sem hann segir skrúfa niður verðið á algengum lyfjum. Hann fullyrðir að nú um stundir séu ódýrustu lyf landsins fáanleg á Akranesi og tekur dæmi af magalyfi sem lækkaði um 70 prósent skömmu eftir að hann opnaði sína verslun. Hann hefur rætt málið við Samkeppnisstofnun en segir lítil viðbrögð hafa fengið. Ólafur segir, að í maí á þessu ári, rétt áður en Apótek Vesturlands opnaði lyfsölu sína, hafi magalyfið Nexium í 100 stykkja 40 milligramma pakkningum kostað 4941 krónu. Nú kosti lyfið hins vegar 2815 krónur í Lyf og Heilsu á Akranesi. Apótek Vesturlands býður sama lyf á 2814 kr. Lyf og heilsa hefur ekki lækkað verðið í öðrum verslunum sínum og í dag kostar sami lyfjaskammtur 4859 krónur í Lyf og Heilsu í Vesturbæ í Reykjavík. Lyfið er því 70 prósent ódýrara á Akranesi en í Reykjavík. ,,Það er ekki nóg með að Skagamenn hafi tekið fjögur stig af KR í sumar heldur niðurgreiða Vesturbæingar líka lyfin fyrir okkur hér á Akranesi," segir Ólafur. „Lyf og Heilsa sitja einir að lyfsölu í Vesturbæ eftir að Hringbrautarapóteki var lokað skömmu eftir að Lyf og Heilsa opnaði sitt apótek í sama húsi. Þeir sitja því einir að Vesturbænum, en um leið og annað apótek opnaði hér á skaganum þá lækkuðu þeir verðið niður úr öllu valdi, " segir hann. Að sögn Ólafs einskorðast verðlækkuninn alls ekki við Nexium heldu eigi þetta við um öll algengustu lyf. „,Maður er eiginlega varnarlaus gegn svona tilburðum," segir Ólafur. „Þeim er alveg sama þó þeir lækki verðið í einni verslun í einhvern tíma. Þeir ná því bara inn annars staðar." Hann segist þegar hafa rætt málið við Samkeppnisstofnun en þar á bæ virðist hlutirnir gerast hægt. „Það er ekki eins og við séum að tala um lækkun upp á nokkrar krónur. Þetta er bara einn angi af miklu stærra máli sem eru þeir fákeppnistilburðir sem viðgangast hér á landi." Að sögn Ólafs er ekki auðvelt fyrir einyrkja á borð við hann að koma ár sinni fyrir borð. „Menn byggja sín plön á ákveðnum forsendum. Ein af þeim forsendum er sú að hér sé heilbrigð samkeppni en því virðist ekki vera fyrir að fara á þessum markaði." Ólafur segist þó hafa litlar áhyggjur af því að Akurnesingar láti plata sig eins og hann orðar það. „Fólk er ekki fífl og það sér hvert mannsbarn að ástæða lækkuninnar hér í bænum er eingöngu innkoma okkar í Apóteki Vesturlands inn á markaðinn. Af hverju hafa þeir ekki boðið þetta lága verð hér síðustu ár? Og af hverju er þeir með helmingi lægra lyfjaverð á Akranesi en annars staðar á landinu?, " spyr Ólafur Adolfsson lyfsali í Apóteki Vesturlands að lokum.
Mest lesið Háhyrning rak á land í Grafarvogi Innlent Íslendingur í Graz: „Brotna niður við að hugsa um þessa foreldra“ Erlent Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Innlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Innlent Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ Innlent Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Innlent Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Innlent Orri Harðarson er allur Innlent „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Innlent Fleiri fréttir Háhyrning rak á land í Grafarvogi Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli „Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Fannst látinn í hlíðum Esjunnar „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Maðurinn á Esjunni er fundinn Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Eldur í bílskúr á Álftanesi Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Tilkynningum um nauðganir fjölgaði milli ára „Ég trúi ekki öðru en að þetta fari í gegn“ „Þetta er afturför í þjónustu við konur með endómetríósu“ Leit að göngumanni og ein harðasta árásin á Úkraínu Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Sjá meira