Einungis konur í fámennasta skóla landsins 29. ágúst 2007 12:07 Elín skólastýra: Líst ljómandi vel á komandi vetur. Mynd Jón G. Guðjónsson
Finnbogastaðaskóli í Árneshreppi á Ströndum er fámennasti skóli landsins með aðeins tvo nemendur og verður hann settur á morgun. Það vekur athygli að í skólanum verða einungis konur, starfsmennirnir þrír eru konur og nemendurnir tveir eru stúlkur, 7 ára og 10 ára. Nýráðin skólastýra er Elín Agla Briem. "Mér líst alveg ljómandi vel á komandi vetur hér í Finnbogastaðaskóla," segir Elín Agla Briem. "Bæði er hér mikil náttúrufegurð í kring og svo mikil saga í kringum svæðið frá fornu fari en skólinn heitir í höfuðið á Íslendingasögukappanum Finnboga ramma." Auk Elínar starfar annar kennari við skólann og matráðskona. Elín er nýflutt á Strandir en hún stundaði nám í heimspeki við Háskóla Íslands. Þar áður bjó hún um um nokkurra ára skeið í Englandi þar sem hún m.a. rak netverslun og lifði í Búddamiðstöð. Aðspurð um hvort skólinn sé ekki einangraður á veturnar segir hún svo vissulega vera. "Skólinn er í Trékyllisvík í um 100 km fjarlægð frá Hólmavík. Vegasamband er mjög takmarkað á veturnar en það er flugvöllur í Gjögri og þangað er flogið tvisvar í viku á veturnar og þannig fáum við vistir og kost," segir Elín Agla. Þess má geta að Finnbogaskóla helst vel á starfsfólki sínu. Þannig hefur samkennari Elínar, Bjarnheiður J. Fossdal, starfað við skólann í 26 ár.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fleiri fréttir Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Sjá meira