Til Texas að hitta tengaforeldrana 29. ágúst 2007 09:45 Ungfrú Ísland hefur mikið að gera og undirbýr nú ferðir til bæði Texas og Kína. Kærastinn býr í Texas en keppnin um titilinn Miss World mun fara fram í Kína.
Ungfrú Ísland, Jóhanna Vala Jónsdóttir, hefur í nógu að snúast þessa dagana. Auk þess að starfa sem flugfreyja hefur hún hafið undirbúning fyrir keppnina um titilinn Miss World sem fram fer í Kína. Í október ætlar hún til Texas í heilan mánuð og hefur aðeins tvær vikur til þess að pakka aftur ofan í tösku fyrir Kínaferðina. „Þetta verður bara gaman þótt vissulega sé þetta mikið á skömmum tíma,“ segir Jóhanna Vala. „Ég hef hvorki komið til Kína né Asíu áður. Vinkona mín bjó hins vegar þarna og segir að eyjan Sanya sé gullfalleg en keppnin verður haldin þar. Ég hlakka mikið til og held að þetta verði ævintýri. Ég er enn þá að fljúga á fullu en reikna með að klára reddingar og annað strax í byrjun september. Keppnin er 1. desember. Annars vonast ég til að geta keypt flesta kjólana í Texas. Ég er löngu byrjuð að spá í þau mál og hef skoðað mikið á netinu. Þetta er örugglega slatti sem ég þarf að taka með.“ Jóhanna Vala segist vera komin með aðgang að líkamsræktarstöð í Texas enda felist mikill hluti undirbúningsins í að halda sér í toppformi. „Ég ætla að vera mjög dugleg að æfa mig úti. Annars er ég ekkert séní í líkamsræktarmálum og geri bara þessar hefðbundnu lyftingaæfingar auk þess sem ég hleyp mikið. Ég er algjör hlaupagikkur.“ Ástæðan fyrir ferðinni til Texas er sú að kærasti Jóhönnu Völu er búsettur í ríkinu en þau kynntust sem kunnugt er á MySpace-vefnum. Hann sótti Ísland heim um miðjan júlí síðastliðinn en þetta er í fyrsta skipti sem Jóhanna Vala fer til Texas. „Honum leist vel á Ísland enda fengum við yndislegt veður. Við fórum að skoða alla þessa hefðbundnu ferðamannastaði. Ég veit ekki nákvæmlega hvað hann ætlar að sýna mér úti en við ætlum að minnsta kosti til Los Angeles í Kaliforníu.“ Jóhanna Vala segir að þótt hún sé að fara í fyrsta skipti til Texas hafi þau náð að hittast töluvert. „Ég flýg mikið til Bandaríkjanna og hef líka farið sem farþegi þegar ég er ekki að vinna. Þetta er því ekkert mál.“ Hún segist ekki hafa hitt tengdaforeldrana enn þá. „Það á að kynna mig fyrir þeim í ferðinni í næsta mánuði,“ segir hún og hlær. „En ég er búin að tala við þau í síma og er voða róleg yfir þessu.“
Mest lesið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Fleiri fréttir „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Sjá meira