Stór og erfið ákvörðun fyrir Hafnfirðinga 31. mars 2007 23:13 Pétur á kjörstað í dag. „
Við erum bara mjög ánægð,“ sagði Pétur Óskarsson, talsmaður Sólar í Straumi, eftir að ljóst varð að Hafnfirðingar hefðu hafnað stækkun álversins í Straumsvík. Hann sagði að um stóra og erfiða ákvörðun hefði verið að ræða fyrir Hafnfirðinga og baráttan fyrir kosningarnar hefði verið hörð. Hann sagði gott að málinu væri lokið og ljóst væri að það gerðist ekkert í Hafnarfirði og morgundagurinn rynni upp eins og aðrir dagar. Aðspurður hvort ekki hefði verið neikvætt hve lítill munur hefði orðið á fylkingunum sagði Pétur svo ekki vera. Þetta sýndi hvað ákvörðunin hefði verið erfið fyrir Hafnfirðinga. Það hefði verið búið að kynna þetta mál rosalega fyrir bæjarbúum og ákvörðunina hefði þurft að taka. Þá taldi Pétur ekki líklegt að bærinn myndi klofna vegna þessa. Hann teldi að það myndi fenna fljótt í þá gjá sem myndast hefði á milli fylkinganna. Mjög margir væru búnir að leggja hart að sér og þau í Sól í Straumi hefðu staðið í baráttu í fimm og hálfan mánuð. Það hlyti að vera ein lengsta og strangasta kosningabarátta sem fram hefði farið hér á landi.
Mest lesið Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Fleiri fréttir Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Sjá meira