Ráðherra sló ritarann fyrir álfi 31. maí 2007 05:30 Guðlaugur Þór keypti í gær fyrsta álfinn í hinni árlegu álfasölu SÁÁ. Á myndinni er einnig Birta Aradóttir. „
Þetta telst eitt af mínum allra fyrstu embættisverkum. Og það geri ég með mjög glöðu geði,” segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Í gær keypti Guðlaugur fyrsta álfinn í hinni árlegu álfasölu SÁÁ sem nú fer fram í 18. sinn. Þegar Fréttablaðið náði tali af ráðherra var nokkurt óðagot niðri í ráðuneyti því ráðherra hugðist snarast út í næsta hraðbanka til að ná í reiðufé til að greiða fyrir álfinn góða. En hann átti þá von á sölufólki álfsins innan tíðar. „Nei, ég hef þá nefnilega grunaða um að vera ekki með posa,” segir Guðlaugur Þór aðspurður hvort hann teldi SÁÁ-fólk ekki vera með posa líkt og ljóðskáld sem liggja orðið á því lúalagi, þegar menn breiða yfir áhugaleysi sitt á ljóðabókum til sölu með því að segjast ekki eiga fé handbært heldur bara kort, að veifa framan í þá posa. „Nei, bíddu, þetta reddaðist. Ég sló ritarann. Fyrir álfi,” segir ráðherra léttur í bragði. Og gat nú rólegur sinnt blaðamanni. „Þetta er afskaplega gott framtak. SÁÁ er eitt þessara öflugu félagasamtaka sem eru að vinna gott starf í þágu heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Nei, þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég kaupi álfinn. Ég held ég hafi alltaf gert það og meira að segja hef ég skrifað greinar í þeim tilgangi að hvetja fólk til að kaupa álfinn. Það er mér sérstök ánægja að fá að kaupa þann fyrsta núna og vil hvetja alla til að kaupa hann einnig. Enda er þeim fjármunum vel varið.”
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Fleiri fréttir Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Sjá meira