Tengdasonur forsetans keppir við varaformann Vinstri grænna 15. febrúar 2007 06:45 Illugi jökulsson Segist ekki finna fyrir neinni pressu þó vissulega geti hann, eins og allir, notað fimm milljónir.
Illugi Jökulsson spurningaljón verður í þéttum hópi 16 gáfumenna sem keppa í Meistaranum sem hefst fyrir alvöru í kvöld. Meðal keppenda er Karl Pétur Jónsson, tengdasonur forsetans. „Já, ég lét undan þrotlausum og gríðarlegum þrýstingi Loga Bergmanns," segir Illugi Jökulsson, ritstjóri með meiru. Hann mun taka þátt í Meistaranum en lengi vel lék vafi á um hvort Illugi myndi gefa kost á sér að nýju. Hann var meðal keppenda í fyrstu þáttaröð spurningaþáttarins Meistarans sem hefst nú í kvöld. Ekki er það árennilegur hópur gáfumenna sem takast á í Meistaranum. Í hópnum eru 16 manns. Áður hefur Fréttablaðið nefnt til sögunnar Katrínu Jakobsdóttur, varaformann Vinstri grænna, og hinn mjög svo fróða Sigurð G. Tómasson útvarpsmann. Svanborg Sigmarsdóttir blaðamaður verður meðal keppenda sem og þeir bræður Gísli þýðandi og Páll Ásgeir Ásgeirsson rithöfundur - alþekkt spurningaljón. Erlingur Sigurðsson, fyrrverandi safnstjóri, Helgi Árnason skólastjóri (faðir Jónasar Arnar sigurvegara frá í fyrra) og Björn Guðbrandur Jónsson umhverfisfræðingur eiga það sammerkt með Illuga að hafa keppt í fyrra. Heiður almannatengla verja svo þeir Örn Úlfar Sævarsson og Karl Pétur Jónsson sem kunnur er fyrir að vera tengdasonur forseta vors Ólafs Ragnars Grímssonar. Karl Pétur mætir Katrínu Jakobsdóttur í 1. umferð. Helgi Árnason mætir Erni Úlfari í fyrstu viðureigninni. Ónefndir eru þá Bryndís Sveinsdóttir blaðamaður, Magnús Þorlákur Lúðvíksson nemi, Jón Pálmi Óskarsson, Baldvin Már Baldvinsson leikskólaleiðbeinandi og Ólöf Ýrr Atladóttir líffræðingur. Aðspurður hvort Illugi finni ekki fyrir pressunni, bæði í ljósi þess að hann tók þátt í fyrra, er alþekkt spurningaljón og spurningahöfundur í Gettu betur, segir hann svo ekki vera. „Vegna þess að þetta er spurning um hugarfar og ég er búinn að ákveða að taka þessu léttar en í fyrra. Þannig að ég geri mér engar grillur og þar sem mér hefur hrakað stórlega að vitsmunum frá í fyrra reikna ég ekki með að komast langt. En lét undan þessum ofboðslega þrýstingi," segir Illugi. UMFERÐ: 15. febrúar Helgi Árnason - Örn Úlfar Sævarsson 22. febrúar Páll Ásgeir Ásgeirsson - Svanborg Sigmarsdóttir 1. mars Baldvin Már Baldvinsson - Magnús Þorlákur Lúðvíksson 8. mars Illugi Jökulsson - Bryndís Sveinsdóttir 15. mars Katrín Jakobsdóttir - Karl Pétur Jónsson 22. mars Sigurður G. Tómasson - Björn Guðbrandur Jónsson 29. mars Erlingur Sigurðarson - Ólöf Ýrr Atladóttir 5. apríl Gísli Ásgeirsson - Jón Pálmi Óskarsson
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Fleiri fréttir Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Sjá meira