Geysispennandi kosningasjónvarp framundan Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 12. maí 2007 19:06
Undirbúningur kosningasjónvarpsins er nú á lokaspretti og starfsfólk stöðvar 2 um allt land er í startholunum fyrir útsendinguna sem hefst klukkan níu. Sigríður Guðlaugsdóttir heimsótti myndverið á Lynghálsi, en þaðan verður fylgst náið með framvindu mála fram á rauða nótt. Tugir starfsmanna stöðvarinnar vinna við útsendinguna í kvöld auk tíu tökuliða víðs vegar um landið sem sækja viðbrögð almennings og frambjóðenda. Þrotlaus vinna liggur að undirbúningi kosningasjónvarpsins og allir hafa lagst á eitt. Kosningasérfræðingar stöðvarinnar munu taka púlsinn á nýjustu tölunum reglulega og ýmsir koma í heimsókn í myndverið, meðal annars formenn flokkanna. Kristján Már Unnarsson fréttamaður segir aðalatriðið við kosningarnar vera tölurnar sjálfar. Hann segir kosningarnar í ár gætu verið mest spennandi í áratugi. Fylgishrun eins flokks gæti haft áhrif á glæstan sigur annars. Allt komi þetta í ljós í kvöld og tölunum verði skilað eins fljótt og auðið er. Í ár verður nýjustu tölum frá kjörstjórnum varpað fram með nýjum hætti. Elín Sveinsdóttir framkvæmdastjóri kosningasjónvarpsins segir nýja og spennandi tækni notaða til að sýna tölurnar í nýjum sýndarveruleika. Það sé í fyrsta sinn sem það sé gert á Íslandi. Og það er ekki bara ný tækni í útsendingunni sjálfri. Kosningavefur Vísis er sá fullkomnasti sem sést hefur hér á landi. Hallgrímur Thorsteinsson er kosningavefstjóri Vísis. Hann segir framsetninguna vera myndræna, þannig að þegar tölur séu lesnar upp fari þær beint inn í grunninn og myndir birtist af þingmönnum sem eru inni á hverjum tíma. Útsendingin kosningasjónvarpsins hefst klukkan 21 á eftir Stelpunum.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Fleiri fréttir Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Bein útsending: Kristrún með ávarp vegna atkvæðagreiðslunnar Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Sjá meira