20 milljóna bónus ef tekst að flýta Tröllatunguvegi 21. apríl 2007 11:46
Vegagerðin hefur gengið frá verksamningi við lægstbjóðanda, Ingileif Jónsson ehf., um Tröllatunguveg, sem styttir leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fjörutíu kílómetra. Verktakanum býðst að fá tuttugu milljóna króna bónus, takist honum að koma bundnu slitlagi á veginn fyrir 1. september á næsta ári.Nýi vegurinn liggur milli Reykhólasveitar og Steingrímsfjarðar og er um 25 kílómetra langur. Ingileifur Jónsson bauðst til að leggja veginn fyrir 662 milljónir króna, sem var 76 prósent af kostnaðaráætlun. Þrír undirverktakar taka þátt í verkinu. Fossvélar á Selfossi sjá um efnisvinnslu, Suðurverk um sprengingar og Borgarverk um klæðningu. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í næsta mánuði. Byrjað verður að sunnanverðu með því að leggja veginn upp Gautsdal en ekki er gert ráð fyrir því að vinna neitt að ráði Strandamegin í Arnkötludalnum fyrr en á næsta ári. Ljóst er að áhrif þessarar vegagerðar verða víðtækari en margur gæti ætlað við fyrstu sýn. Auk þess að efla samskipti milli Stranda og Reykhólasveitar mun nýja leiðin væntanlega skapa Dalamönnum fleiri störf við að þjónusta þá auknu bílaumferð, sem fara mun í gegn hjá þeim. Aðalleiðin milli Reykjavíkur og Ísafjarðar liggur nú um Holtavörðuheiði og Hrútafjörð en með opnun Tröllatunguvegar má gera ráð fyrir að Ísafjarðarumferðin færist að mestu yfir á hann og fari þá um Bröttubrekku, Búðardal og Gilsfjörð, enda er sú leið um 40 kílómetrum styttri.
Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira