Allt að tólf milljón króna tjón í bruna 21. apríl 2007 12:00 Verulegt tjón varð þegar þjónustuhús GR brann í nótt. MYND/365
Talið er að það tjón sem varð þegar kviknaði í þjónustuhúsi Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholti í nótt nemi allt að tólf milljónum króna. Að sögn framkvæmdastjóri klúbbsins var búið að leggja mikla fjármuni í húsið sem nú er talið nánast gjörónýtt. „Húsið brann eins og það lagði sig," sagði Garðar Eyland, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur, í samtali við Vísi. „Þetta er verulegt tjón fyrir okkur sem nemur tíu til tólf milljónum króna." Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt eftir miðnætti í nótt eftir að eldur kviknaði í þjónustuhúsi Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholti. Húsið er staðsett við teig númer 10 á vellinum en þar var meðal annars boðið upp á snyrtiaðstöðu og afgreiðslu fyrir klúbbmeðlimi. Húsið var byggt fyrir fjórum árum. Garðar segir klúbbinn hafa lagt mikinn pening í þetta hús og bruninn komi á afar óheppilegum tíma enda séu aðeins þrjár vikur þangað til völlurinn opnar á ný. „Við verðum að hafa okkur alla við ef við ætlum að koma þessu í stand fyrir opnun," sagði Garðar. Hann segir húsið að fullu tryggt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík eru eldsupptök ókunn og málið í rannsókn.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira