Flugumferðarstjórar samþykkja samkomulag 3. janúar 2007 16:13 Frá fundi flugumferðarstjóra í dag. MYND/Stöð 2
Flugumferðarstjórar samþykktu einróma á félagsfundi í dag heimila stjórn Félags íslenskra flugumferðarstjóra að undirrita samkomulag sem stjórn félagsins og Flugstoða ohf. höfðu komist að í gær. Því má reikna með að flugumferð komist aftur í eðlilegt horf yfir landinu en sérstök viðbúnaðaráætlun hefur verið í gildi frá áramótum vegna skorts á flugumferðarstjórum. Fundur Félags flugumferðarstjóra hófst klukkan eitt í dag en lauk laust fyrir klukkan fjögur þegar samkomulagið var samþykkt en í því felst meðal annars flugumferðarstjórar fá sömu réttindi og þeir höfðu í starfi hjá Flugmálastjórn. Sömuleiðis tryggir samkomulagið þeim flugumferðarstjórum sem hingað til hafa neitað að ráða sig til Flugstoða vinnu aftur og sagði Lofur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, að það væri í höndum hvers og eins félagsmanns að ákveða hvort hann vildi vinna hjá fyrirtækinu. Hann teldi þó líklegt að þeir myndu gera það. Loftur sagði enn fremur að almenn sátt hefði verið á fundinum um samkomulagið enda hefði stjórn Félags íslenskra flugumferðarstjóra verið með skýrar línur um samningsatriði en jafnframt skilyrði um að samkomulag yrði borið undir félagsmenn. Á því steytti í viðræðum Flugstoða og flugumferðarstjóra í gærkvöld, en þá kröfðust Flugstoðir þess að undirskrift stjórnarmanna í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra gilti skilyrðislaust án þess að samkomulagið yrði fyrst borið undir fund flugumferðarstjóra. Loftur sagði að næsta skref væri að undirrita samkomulagið við Flugstoðir. Boltinn væri nú hjá Flugstoðum og hann biði sjálfur með pennann í hendinni eftir því að skrifa undir samkomulagið. Flugstoðir ohf. tóku við flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu um áramót af Flugmálastjórn og hefur viðbragðsáætlun verið í gildi frá þeim tíma þar sem flugumferðarstjórar vantar í flugstjórnarmiðstöðina á Reykjavíkuflugvelli.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Sjá meira