Segja kvótasölu ríkisins hækka matarverð 23. apríl 2007 16:32 MYND/Getty
Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ, mótmæla því að frítollakvótar vegna innflutnings kjöts og osta skuli hafa verið boðnir upp og seldir fyrir rúmar 430 milljónir króna á dögunum. Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að kvótauppboðin séu andstæð yfirlýstum markmiðum ríkisstjórnarinnar um lækkun matvöruverðs og hugmyndum um frítollakvóta. Samtökin benda á, að ef almennir kvótar vegna sömu vara verði boðnir upp í júní næstkomandi, og ef þeir seljast á svipuðu verði og í fyrra, megi áætla að ríkið hafi alls um 600 milljónir króna í tekjur af þessari kvótasölu á árinu 2007. SVÞ segjast hafa lagt á það áherslu, þegar breytingar á búvörulögum voru til afgreiðslu fyrir þinglok, að þessum kvótum yrði úthlutað án uppboða. „Því miður var ekki fallist á þetta sjónarmið," segir í tilkynningunni. Ennfremur segir að landbúnaðarráðuneytið hafi ekki fallist á að nýta heimild til hlutkestis við úthlutun á tollkvóta vegna samningsins við ESB sem úthlutað var í vikunni eftir páska. Þess í stað hafi verið haldið áfram að úthluta þeim með kvótauppboðum."SVÞ voru fremur varkár í útreikningum sínum þegar þau vöruðu Alþingi og ríkisstjórn við því að sala á tollkvótum stefndi í að nema 500 milljónum króna á ári sem síðan myndi leggjast við innkaupsverð og stuðla að hækkuðu vöruverði í landinu, öndvert við það sem þingheimur á Alþingi hafði lýst yfir að þyrfti að verða," segir í tilkynningunni. Því hvetja samtökin til þess að aðferðum við úthlutun verði breytt og að aðrar aðferðir verði skoðaðar í því sambandi. „Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir að aferðir ríkisins við úthlutun tollkvóta haldi áfram að stuðla að hærra vöruverði í landinu."
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira