15 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir barnanauðgun 7. mars 2007 15:13
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann á áttræðisaldri í 15 mánaða fangelsi, vegna kynferðisbrota. Maðurinn misnotaði 10 ára sonardóttur sína ítrekað. 12 mánuðir af refisingunni eru skilorðsbundnir. Brotin áttu sér stað á Akureyri á árunum 2004-2006 og misnotaði maðurinn sonardóttur sína á sínu heimili og stúlkunnar. Hann káfaði á brjóstum hennar og kynfærum og setti fingur í kynfæri hennar. Lögreglu varð fyrst kunnugt um málið með bréfi frá Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar í ágúst í fyrra. Við yfirheyrslur játaði maðurinn athæfið en bar því við að honum hefði ekki fundist stúlkan mótfallin athæfinu. Stúlkan var 10-12 ára þegar brotið var gegn henni. Hún bar fyrir dómi að afi hennar hefði einu sinni snúið upp á handlegg hennar svo hún hafi fundið til í úlnlið og komið síðan fram vilja sínum. Þá hafi afinn sagt henni að hún mætti alls ekki segja frá þessu. Hegðun stúlkunnar breyttist mjög eftir að brotin hófust. Hún kaus einveru, varð lífsleið og talaði jafnvel um að fyrirfara sér. Hún fann oft fyrir höfuðverk og eymslum í maga og var veik án þess að skýringar fyndust. Líðan stúlkunnar batnaði eftir að hún sagði sína sögu. Í dómi héraðsdóms segir að brot ákærða hafi verið gróf og með atferli sínu hafi afinn brotið gegn því trausti og öryggi sem barn á að njóta í samvistum við nána fjölskyldu sína. Hann hafi ekkert séð athugavert við hegðun sína fyrr en í viðtölum við sálfræðing eftir að málið varð opinbert. Þykir hann ekki eiga sér aðrar málsbætur en þær að hann hafi játað brot sín að mestu Fjölskipaður dómur dæmdi í málinu og var manninum einnig gert að greiða barnabarni sínu 850.000 krónur í skaðabætur.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Sjá meira