Tók Ísland framyfir Alaska 7. mars 2007 09:00 Hugsanlega lenti leikarinn að næturlagi í höfuðborginni þannig að sem minnst færi fyrir honum. Hann ku ætla að kíkja á næturlíf miðborgarinnar. Samsett mynd/Kristinn
Mikil leynd hvílir yfir komu stórleikarans Leonardo DiCaprio hingað til lands í myndatöku fyrir tímaritið Vanity Fair. Fréttablaðið greindi frá því að von væri á DiCaprio í gær og var upphaflega reiknað með honum síðdegis. Talsverðar breytingar hafa þó átt sér stað á ferðatilhögun DiCaprio, en áður en blaðið fór í prentun var talið líklegt að leikarinn myndi lenda að næturlagi til að forðast óþarfa áreiti. Meðal þeirra sem voru í föruneyti DiCaprio eru fjölmiðlafulltrúi leikarans og unnusta, fyrirsætan Bar Rafaeli, en hún sat fyrir í einu vinsælasta tímaritaeintaki heims, baðfatablaði Sport Illustrated. Annie Leibovitz, einhver frægasti ljósmyndari heims, tekur myndirnar en hún er hálfgerður hirðljósmyndari þotuliðsins í Hollywood. Starfsmenn Leibovitz komu hingað fyrir nokkrum dögum og leituðu heppilegra staða og voru augljóslega mjög ánægðir með það sem fyrir augu bar. Upphaflega stóð til að stjörnuhersingin héldi til Alaska fyrir myndatökuna en þegar frá því var horfið kom upp sú hugmynd að fara Íslands. Í fyrstu var þó einungis reiknað með stuttu stoppi og að leikarinn myndi ekki einu sinni hafa næturdvöl hér á landi en DiCaprio krafðist þess að fá að kynnast næturlífi Reykjavíkur sem og landinu.Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins mun DiCaprio, starfsfólk Vanity Fair og True North eyða stærstum hluta dvalarinnar í að ferðast um landið og finna heppilega tökustaði en heimildir blaðsins hafa verið á reiki um hvar þær færu fram. Upphaflega var talið að DiCaprio yrði myndaður á Snæfellsjökli og þá voru einnig sögusagnir á kreiki um að þær færu fram við Jökulsárlón. Og var því fleygt fram að leikaranum yrði komið fyrir út á ísjaka í miðju lóninu. Ekkert fékkst þó staðfest í þessum efnum og Einar Björn Einarsson, staðahaldari í Jökulsárlóni, kannaðist ekki við komu True North eða stórrar kvikmyndastjörnu þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. Starfsfólk True North var þögult sem gröfin þegar Fréttablaðið leitaði svara og Finnur Jóhannesson, sem unnið hefur baki brotnu við að undirbúa komu leikarans hingað, vildi ekkert láta hafa eftir sér.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist Fleiri fréttir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Sjá meira