„Læt ekki taka mig af lífi án dóms og laga“ 27. september 2007 20:33 Atli ætlar ekki að una því að vera settur í veiðibann. MYND/Róbert
Atli Gíslason, alþingismaður og lögmaður, ætlar ekki að una úrskurði Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem nýverið dæmdi hann og veiðifélaga hans í þriggja ára veiðibann. Eftirlitsmaður í Hítará stóð nokkra þeirra að því að veiða á maðk í ánni og voru þeir í kjölfarið allir dæmdir í bann. Atli hyggst leita réttar síns í málinu og sættir sig ekki við að vera dæmdur fyrir verknað sem hann kom ekki nálægt og vissi ekki um. „Ég er fluguveiðimaður og á bara flugustöng," segir Atli í samtali við Vísi. „Ég fór með flugustöng í ánna og ætli ég hafi ekki verið búinn að veiða í um það bil tíu mínútur þegar ég hætti því þar sem stangarfélagi minn var byrjaður að veiða á hinum bakkanum." Atli segist ekki hafa haft hugmynd um að félagi hans hafi verið með maðk á. „Ég harma það sem félagar mínir gerðu en ég læt ekki taka mig af lífi án dóms og laga." Hann gagnrýnir einnig hvernig staðið var að málinu af hálfu Stangaveiðifélagsins því hann frétti ekki af úrskurðinum um veiðibannið fyrr en hann las um það í fjölmiðlum. Hann hafi því ekki fengið tækifæri til þess að skýra sitt mál fyrir stjórninni áður en úrskurðurinn var kveðinn upp. Atli segist ekki skilja hvernig Stangaveiðifélagið geti haft upplýsingar um að hann hafi vitað af broti veiðifélaganna, eins og kemur fram í úrskurðinum. „Ég mun leita míns gegn Stangaveiðifélaginu í þessu máli og er að afla gagna. Mér líður eins og manni sem fer á sveitaball með fjórum vinum, tveir þeirra gerast brotlegir við lögin og mér er refsað af því að ég fór með þeim á ballið. Þetta nær ekki nokkurri átt," segir Atli Gíslason.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Sjá meira