Innlent

Fjórtán mánaða fangelsi fyrir líkamsárás

MYND/E.Ól

Hæstiréttur þyngdi í dag dóm yfir manni sem sakfelldur var fyrir líkamsárás. Dæmdi Hæstiréttur hann í 14 mánaða fangelsi en héraðsdómur hafði áður dæmt hann í eins árs fangelsi.

Manninum var gefið að sök að hafa skallað annan mann í andlitið svo að fjórar framtennur brotnuðu auk þess sem fórnarlambið hlaut skurð í neðri vör.

Við skýrslutöku hjá lögreglu viðurkenndi hinn ákærði að hafa verið þarna að verki. Fyrir dómi kannaðist hann hins vegar ekki við að hafa skallað fórnarlamb sitt auk þess sem fórnarlambið kvaðst ekki geta verið viss um að maðurinn hefði valdið honum áverkanum.

Hæstiréttur vísaði til þess að mennirnir hefðu báðir staðfest fyrir dómi að hafa gefið skýrslur hjá lögreglu þess efnis að hinn ákærði hefði framið það brot sem hann var sakaður um. Ekkert væri fram komið sem rýrði sönnunargildi játningarinnar og skýrslu fórnarlambsins fyrir lögreglu.

Með brotinu rauf maðurinn skilorð dóms sem hann hlaut árið 2003 fyrir líkamsárás og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×