Ekki á borði borgarráðs að aflétta leynd af verðmati 27. september 2007 13:47 MYND/Anton
Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, segir það ekki á borði ráðsins að aflétta leynd af verðmati Gagnaveitu Reykjavíkur, áður Línu.neti, eins og fulltrúar Samfylkingarinnar hafi haldið fram. Samfylkingin í borginni sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem greint var frá því að meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í borgarráði hafi í morgun hafnað beiðni Samfylkingarinnar um að létta leynd af verðmatinu. Bauðst meirihlutinn til þess að greina frá verðmatinu á næsta borgarráðsfundi en þá sem trúnaðarmáli. Björn Ingi segir í samtali við Vísi að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, móðurfélags Gagnaveitunnar, hafi ákveðið að gefa ekki upp verðmat Gagnaveitunnar og það sé því í höndum þeirrar stjórnar að aflétta leyndinni. Bendir Björn Ingi á að fleiri aðilar en Reykjavíkurborg komi að stjórn Orkuveitunnar. Ákveðið hafi verið að vísa málinu til næsta stjórnarfundar Orkuveitunnar en ekki hefur verið ákveðið hvenær hann verður. Aðspurður hvort hann sé fylgjandi því að leynd verði aflétt að verðmatinu segir Björn Ingi það verði að meta slíkt í hverju tilviki fyrir sig. Hann bendir á að verðmat sé gert til þess að meta stöðu félags og framtíðarhorfur þess. Um leið og menn geri verðmat opinbert versni samningsstaða ef til sölu komi. Menn séu þá að sýna á spil sín. „Það er hins vegar ekki búið að taka neina ákvörðun um sölu í þessu tilviki og ég tel ekki heppilegar aðstæður á markaði til að selja nú. Þetta er efnilegt fyrirtæki með bjarta framtíð og ég fagna því að vel hafi tekist til með rekstur þess," segir Björn Ingi um Gagnaveituna.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira