Innlent

Vill að ríkissjóður greiði niður skuldir

Frosti Ólafsson (t.v.) vill greiða niður skuldir ríkissjóðs.
Frosti Ólafsson (t.v.) vill greiða niður skuldir ríkissjóðs. Mynd/ GVA

Frosti Ólafsson, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði Íslands, segir það vera mjög jákvætt að hið opinbera skuli skila rekstrarafgangi á sama tíma og Seðlabankinn er í mjög stífum aðhaldsaðgerðum með hárri vaxtastefnu. Tölur Hagstofunnar benda til að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið jákvæð um 81 milljarð á síðasta ári. Frosti telur að nota eigi þessa góðu afkomu til þess að greiða niður skuldir ríkissjóðs á uppgangstímum eins og eru núna. Síðan megi lækka skatta þegar meiri slaki kemst á efnahagslífið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×