Innlent

Flugvél KLM-flugfélagsins lenti óvænt í Keflavík

Jón Hákon Halldórsson skrifar
KLM-vélin hélt áfram för sinni um hálfsex.
KLM-vélin hélt áfram för sinni um hálfsex.

Flugvél frá KLM-flugfélaginu á leið til Kanada lenti óvænt á Keflavíkurflugvelli rétt eftir klukkan fjögur í dag. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar segir að í vélinni hafi verið töskur sem ekki fylgdu þeim farþegum sem um borð voru. Í þeim tilfellum sé alltaf gripið til ákveðinna ráðstafana „Flugvél á ekki að fara í loftið með farangur sem tilheyrir ekki farþega um borð," segir Friðþór. Vélin yfirgaf Keflavíkurflugvöll um hálfsex og hélt áfram á áfangastað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×