Innlent

Enn spáð óveðri

Það er spáð leiðindaveðri næsta sólarhringinn.
Það er spáð leiðindaveðri næsta sólarhringinn.
Engar fréttir hafa borist af tjóni vegna hvassviðris á landinu en stormviðvörun er enn í gildi hjá Veðurstofu Íslands. Samkvæmt yfirliti Veðurstofunnar klukkan níu í morgun var einna hvassast á annesjum vestanlands, á Suðurnesjum og Snæfellsnesi en einnig á heiðum eins og Steingrímsfjarðarheiði. Einnig var allhvasst í Öræfum.

Samkvæmt spánni er búist við stormi víða um land næsta sólarhring. Spáð er norðaustan- og norðanátt, víða 15-23 m/s, og rigningu eða slyddu, einkum A-lands, en léttir til á SV-landi. Hiti verður á bilinu 2 til 10 stig, hlýjast sunnantil. Fer að lægja NV- og V-lands síðdegis á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×