Innlent

Yoko og Sean Lennon komin, Ringo er á leiðinni

Yoko Ono er komin til landsins til að tendra friðarsúluna í Viðey sem mun lýsa upp íslenskan næturhiminn í minningu John Lennon. Sean, sonur þeirra hjóna, er einnig í Reykjavík. Mikið umstang var í Viðey í dag. Trymbillinn Ringo er hins vegar ekki enn mættur en von á honum um eða eftir helgina.

Friðarsúlan er gríðarlega öflugur himnastigi sem stendur á megininntaki í skáldskap og tónsmíðum Lennon, undirstaðan er friður.

Áformað er að ljóssúlan verði tendruð árlega á fæðingardegi Lennons og lýsi fram að dánardægri hans, en Lennon féll fyrir hendi morðingja þann 8. desember 1980.

Allnokkurt rask hefur verið við framkvæmdir tengdar súlunni en hartnær 500 þúsund óskir um frið hafa verið grafnar í jörð umhverfis súluna.

Mikið var í gangi í Viðey í dag en langferðabílar voru fluttir út í Viðey, sjóleiðina, en líklega verða ökuferðirnar í styttra lagi því vegir eru ekki langir í eynni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×