Formannsskipti í UJ 7. október 2007 14:36
Á landsþingi Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, sem nú stendur yfir í Reykjavíl mun nýr formaður formlega taka við völdum. Við formennskunni tekur Anna Pála Sverrisdóttir en Magnús Már Guðmundsson hefur verið formaður undanfarin ár. Landsþingið samþykkti jafnframt í dag ályktun þar sem frekari uppbyggingu í áliðnaði á Íslandi er hafnað. Ályktun UJ: Ungir jafnaðarmenn hafna frekari uppbyggingu áliðnaðar á Íslandi. Ungir jafnaðarmenn vilja að Íslendingar geri sér grein fyrir hvaða verðmætum þeir sitja á í íslenskri náttúru og hagi sér samkvæmt því. Öll skynsemisrök hníga að því að segja nú þegar, og til framtíðar, stopp við áframhaldandi uppbyggingu mengandi stóriðju. Ungir jafnaðarmenn hafna því frekari uppbyggingu áliðnaðar á Íslandi. Landsmenn ættu að auka fjölbreytni atvinnulífsins fremur en að setja öll sín egg í hina yfirfullu álkörfu. Til lengri tíma telja Ungir jafnaðarmenn að hagsmunum Íslendinga sé betur borgið með því að þróa atvinnulíf í betri sátt við umhverfið. Í því samhengi eru fulltrúar Samfylkingarinnar á Alþingi og í sveitarstjórnum hvattir til að fylgja staðfastlega eftir stefnu flokksins þar sem lögð er áhersla á að örva nýsköpun og bæta aðstæður fyrir hátækniiðnað og sprotafyrirtæki. Minnt er á að verndun lands er nýting og að óspillt náttúra er auðlind í sjálfri sér. Íslendingar eiga ótæmandi möguleika á nýtingu þeirra miklu auðlinda sem felast jafnt í sérstæðri náttúru og endurnýjanlegum orkugjöfum. Sýna þarf ábyrgð í öllu ákvarðanatökuferli og gefa sér tíma í rannsóknarvinnu. Minnt er á að með fljótfærnislegri útgáfu rannsóknarleyfa korteri fyrir síðustu kosningar voru hendur núverandi ríkisstjórnar fyrirfram bundnar. Í orku- og iðnaðarmálum fór ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks offari í afdrifaríkum ákvörðunum sem teknar voru á skjön við góða stjórnarhætti. Ungir jafnaðarmenn hvetja til þess að allar fyrirhugaðar álversframkvæmdir verði stöðvaðar. Þar sem undirbúningur er á einhvern veg kominn, og þá ekki síst fyrir tilstilli fyrri ríkisstjórnar, er vakin athygli á að enn er hægt að koma í veg fyrir slík mistök á sveitarstjórnarstiginu. Er þar sérstaklega átt við álver í Helguvík og á Bakka. Þá ítreka ungir jafnaðarmenn að ofurvarlega þarf að fara þegar teknar eru ákvarðanir um virkjun jarðhitasvæða, ekki síður en vatnsafls. Mörg jarðhitasvæði eru jafnframt einstakar náttúruperlur sem ekki má spilla. Á komandi árum er líklegt að tækni við nýtingu jarðhita fleygi fram. Ef ekki er hægt að nýta jarðhitann undir verðmætum náttúrusvæðum, án þess að spilla þeim, er virkjun þeirra einfaldlega ekki tímabær. Ungir jafnaðarmenn fara því fram á það við stjórnvöld að þau feli næstu kynslóð þetta úrlausnarefni.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Fleiri fréttir „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Sjá meira