Aðsóknarmet í sundlaugina í Bolungarvík 7. október 2007 12:31
Fjöldi gesta í sundlaugina í Bolungarvík hefur aldrei verið meiri en undanfarna daga. Um síðustu helgi sóttu um 400 manns sundlaugina heim sem er aðsóknarmet. Þar með var slegið aðsóknarmet sem sett var fyrst eftir að laugin var opnuð en þá bjuggu þrisvar sinnum fleiri í Bolungarvík. Nú eru íbúar bæjarins um 900 hundruð talsins sem þýðir að tæplega helmingur íbua hafi farið í laugina liðna helgi. Þessa miklu aðsókn má rekja til þess að ný vatnsrennibraut í sundlaugagarðinum nýtur mikilla vinsælda. Heiðurinn af henni á Hrannar Egilsson, átta ára sem gekk á fund bæjarstjóra, þá fimm ára gamall, með teikningu af vatnsrennibraut og stakk upp á því að henni væri fundinn staður í sundlaugagarðinum. Hafþór Gunnarsson, fréttaritari okkar í Bolungarvík ræddi við Hrannar á dögunum. Í því samtali sagði Hrannar að hann hafi gengið á fund bæjarstjóra með teikningu af rennibrautinni. Ástæðan fyrir því hafi verið sú að víða um land séu vatnsrennibrautir við sundlaugar og því hafi honum þótt tilvalið að hafa eina slíka í Bolungarvík. Á vef Bolungarvíkur segir að mikil ánægja sé meðal sundlaugagesta með þessa viðbót við sundlaugina enda virðist framkvæmdin hafa tekist vonum framar og ungir og aldnir hafa sótt laugina heim. Það styttist þó í að vatnsrennibrautinni verði lokað því ekki gert ráð fyrir að hún sé opin yfir háveturinn.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Fleiri fréttir Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Sjá meira