Sýknuð af skaðabótakröfu vegna meintrar líkamsárásar 27. nóvember 2007 11:28 MYND/Ingólfur
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag tvær konur og tvo karla af skaðabótakröfu manns sem sagði þau hafa ráðist á sig eftir dansleik á Patreksfirði árið 2004. Vildi hann að viðurkennt væri með dómi að þau væru skaðabótaskyld vegna áverka sem hann hlaut í meintri líkamsárás, en fólkinu var gefið að sök að hafa slegið og sparkað í manninn þannig að hann meiddist á úlnlið og fæti. Fólkið neitaði að hafa ráðist á manninn og sagði hann hafa dottið eftir að hafa flúið þegar hann sá til fjórmenningana. Við fallið hafi hann meiðst. Leit dómurinn svo á að áverki mannsins á fæti hefði komið til vegna fallsins og því væri um óhappatilvik að ræða. Fyrir lá í málinu að önnur konan hefði sparkað í manninn en að mati dómsins var talið ósannað að hún hefði valdið þeim áverkum sem tilgreindir voru í kærunni. Benti dómurinn enn fremur á að maðurinn hefði ekki kært meinta líkamsárás til lögreglu. Fram kemur að mál vegna þessa hafi upphaflega verið höfðað í maí 2005 en fellt niður síðar á því ári að ósk þess sem krafðist skaðabóta nú. Maðurinn fékk síðan gjafsókn í málinu í fyrra og höfðaði þá þetta mál og segir dómurinn að gjafsóknin virðist vera það eina sem breyst hafi á milli málaferlanna. Vísaði dómurinn til þess að sannanir skorti fyrir því að fjórmenningarnir hefðu veitt manninum áverka og enn fremur að það lægi fyrir að stefnandinn sjálfur hefði ekki áhuga á málaferlunum ef mið væri tekið af afskiptaleysi hans í málinu.
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira