Engar vísbendingar um að svefnlyf hafi verið notuð af nauðgurum 2. október 2007 15:25 Matthías Halldórsson, landlæknir.
Notkun lyfja á borð við flunitrazepam hér á landi hefur aldrei komið fram við sýnatöku hjá fórnarlöbum nauðgara hér á landi. Þetta segir landlæknir en hann lét gera athugun á málinu í kjölfar mikillar umræðu á Netinu og í fjölmiðlum. Hann segir því litla ástæðu til þess að taka flunitrazepam, sem hefur sömu innhaldsefni og rohypnol, af markaði en lyfið er vinsælt svefnlyf, sérstaklega á meðal eldra fólks. Rohypnol hefur lengi haft orð á sér að vera notað af nauðgurum til þess að sljóvga fórnarlömb sín. Matthías Halldórsson landlæknir segir að athuganir hér á landi hafi leitt sömu niðurstöðu í ljós og greint var frá nýlega í sænska læknablaðinu. Þar var því slegið upp á forsíðu að naugunarlyf væru fremur þjóðsaga en veruleiki. „Oftast skýrir áfengisneysla minnisleysið," segir Matthías. Hann segir að vissulega geti verið að lyfið sé notað í einhverjum tilvikum af nauðgurum en að ekkert bendi til þess að það sé algengt. Að sögn Matthíasar var málið kannað hjá þeim sem fara með þessi mál hér á landi og allar upplýsingar hafi borið að sama brunni, að notkun lyfsins á meðal nauðgara sé orðum aukin. „Auðvitað viljum við ekki að lyf sem notað sé sem nauðgunarlyf sé á markaði en þar sem við finnum engan fót fyrir þeim sögum þá sjáum við litla ástæðu til þess að taka lyfið af markaði eins og kröfur hafa verið um á bloggsíðum," segir Halldór. Hann bætir því við að landlæknisembættinu hafi borist eindregnar óskir frá nokkrum notendum flunitrazepam þess efnis lyfið verði ekki tekið af markaði þar sem það reynist mörgum mjög vel sem svefnlyf, sérstaklega á meðal eldra fólks. „Hins vegar munum við í dreifibréfi til lækna vekja athygli á að læknislyf almennt kunni að einhverju leyti að vera misnotuð á þennan hátt," segir Matthías, og bætir því við að ítrekað verði til lækna að þeir gæti sérstakrar varúðar við útskrift róandi lyfja og svefnlyfja almennt. Athugun landlæknisembættisins leiddi líka í ljós að ekki sé útlilokað að nauðgarar nýti sér ólögleg lyf til þess að sljóvga fórnarlömb sín, en það sé þó sennilega heldur ekki í þeim mikla mæli sem haldið hafi verið fram. Matthías bendir einnig á að með þessari umræðu sé í raun verið að draga úr stærra vandamáli sem sé óhófleg neysla áfengis, sem geti í sumum tilvikum verið svo mikil að hún ein nægi til að skýra minnisleysi hjá fórnarlömbum nauðgara.
Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Þingfundi ítrekað frestað meðan þingflokksformenn funda Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Fimm sviptir réttindum fyrir að aka of hratt á vinnusvæði Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira